top of page
AdobeStock_218222888.jpeg

dáleiðslunám

Fullt dáleiðslunám er ein önn og innifelur öll námskeiðin okkar á önninni,  Sjálfsdáleiðsla, Lærðu að dáleiða, SýndarmagabandsdáleiðslaMeðferðardáleiðsla og BLAST Technique.

Nemendur læra mismunandi aðferðir við að dáleiða og helstu tegundir meðferðardáleiðslu og eru í lok náms tilbúnir að taka á móti fólki í dáleiðslumeðferð.

Nemendur útskrifast sem meðferðardáleiðarar með alþjóðlegt skírteini frá National Guild of Hypnotists, stærstu dáleiðslusamtökum í heimi.

Kennsla fer fram laugardaga og sunnudaga kl. 9-16:

17. – 18. febrúar 2024

24. – 25. febrúar 2024

2. – 3. mars 2024

9. – 10. mars 2024 (Sýndarmagaband)

23. – 24. mars 2024

6. – 7. apríl 2024

13. – 14. apríl 2024

20. – 21. apríl 2024

27. – 28. apríl 2024

4. – 5. maí 2024

25. – 26. maí 2024 (BLAST Technique ®)

Á milli kennsludaga eru æfingatímar.

Verð á náminu 795.000 kr.

NGH.png

Setting the Standard

Nám í dáleiðslu með alþjóðlegri viðurkenningu

Við skráningu þarf að greiða staðfestingargjald að upphæð 29.500 kr.

Hægt er að skipta greiðslum á allt að 36 mánuði með Visa, Mastercard eða Pei

6953127.png
pei-logo.png

Námsefni skólans er margreynt og viðurkennt víða um heim og á Íslandi af: 

Felag daleidara.png
Umsagnir
Umsagnir nemenda

Þetta námskeið borgaði sig á helgi 1 fyrir mig. Ég kem til með að nota þetta nám fyrir mig og vonandi eitthvað fyrir aðra.

Bara sátt og ánægð!!

Takk, takk fyrir mig!!

Elínborg Hilmarsdóttir

Frábært nám!

Námið var skýrt, aðgengilegt, áhugavert og fræðandi og ekki skemmdi fyrir að Jón Víðis er með eindæmum skemmtilegur kennari og fagmaður í alla staði.

Brynja Valdís

Kennslan er öll til fyrirmyndar. Námsefnið er mjög skýrt og mikið af gögnum. Góð sýnikennsla og gott rými fyrir æfingar sem auka öryggið. Heiðarleiki og velvilji í alla staði.

Kristín Sigurðardóttir

Einu orði sagt frábært!  Góð kennsla og efninu gerð góð skil. Frábært nám í afar áhugaverðu efni sem ég kem til með að leggja fyrir mig og nýta mér til hins ýtrasta fyrir sjálfa mig og aðra. Dáleiðsla hefur gert frábæra hluti fyrir mig!

Áhugavert og skemmtilegt!

Hrafnhildur Þorgrímsdóttir

Að fara í Dáleiðsluskólann Hugareflingu er besta ákvörðun sem ég hef tekið í lífi mínu. Ég er orðin 78 ára gömul og hefði betur kynnst þessu námi fyrr. Það hefur á margan hátt gefið mér betri heilsu andlega og líkamlega. Kynnst góðum skólasystkinum og frábærum kennurum.

Takk kærlega fyrir mig

Gróa Rannveig Sigurbergsdótir

Kennslan er öll til fyrirmyndar. Námsefnið er mjög skýrt og mikið af gögnum. Góð sýnikennsla og gott rými fyrir æfingar sem auka öryggið. Heiðarleiki og velvilji í alla staði.

Kristín Sigurðardóttir

Þetta námskeið er alveg frábært. Frábærir kennarar, skemmtilegur tími og góð reynsla. Mæli 100% með Dáleiðsluskólanum Hugareflingu. Gæti talið upp svo miklu fleiri kosti við þennan skóla. Alveg frábær kennsla. Takk fyrir mig.

Guttormur R.

 

Námskeiðið var áhugavert og vel upp sett. Kennararnir náðu vel til allra og komu efninu frá sér þannig að það vakti áhuga manns á að lesa meira og kafa dýpra. Það var góð blanda af bóklegri kennslu og verklegum æfingum til að ná að tileinka sér það sem farið var yfir hverju sinni. Þetta námskeið hefur gefið mér frábær verkfæri sem nýtast mér persónulega og til að hjálpa öðrum. Ég mæli því með þessu námskeiði fyrir alla sem vilja bæta eigin líðan og annarra.

Ingibjörg M.

 

Frábærir kennarar, gott að læra af þeim, alltaf tilbúnir að hjálpa fyrir utan hefðbundnar kennslustundir. Lærði mikið, ótrúleg upplifun, mæli sterklega með þessum frábæra skóla.

Þórhildur M.

bottom of page